Hagnýtar upplýsingar

Heimsókn

Hér finnur þú opnunartíma, verðskrá og upplýsingar um hljóðleiðsögnina áður en þú heimsækir Gamla Hesthúsið. Einnig hvað er í boði fyrir hópa.

Saga og Myndir
Inngangur að sýningunni í Gamla hesthúsinu

Sumar

Opið daglega frá 1.maí til 30.september, kl. 9-18

Vetur

Opnum eftir samkomulagi fyrir einstaklinga og hópa

Gestir á bænum

Gestir í hestaferðum og gistingu fara frítt inn og greiða aðeins fyrir hljóðleiðsögn

Verðskrá

  • Adults: 1.000 ISK (með hljóðleiðsögn)
  • Börn yngri en 12 ára: Ókeypis
  • Gestir í hestaleigu eða gistingu: Ókeypis, hljóðleiðsögn 500 ISK

Sértilboð

Upplifðu báðar sýningarnar á Lýtingsstöðum á betra verði! Sögusetur Íslenska fjárhundsins og Torfhesthús: 1.500 ISK


Hljóðleiðsögn

Hljóðleiðsögnin tekur um 30 mínútur og veitir gestum aukna upplifun af torfbyggingunum, safngripunum og umhverfinu. Hægt er að fá hljóðleiðsögnina á íslensku, ensku, þýsku og frönsku, og hún hentar börnum frá 6 ára aldri.


Sveitaheimsókn

Komdu í skemmtilega sveitaheimsókn með fjölskyldunni! Börnin fá að klappa hestunum og hundunum og skoða landnámshænurnar okkar. Síðan er hægt að skoða torfhesthúsið og Sögusetur Íslenska fjárhundsins. Við gefum okkur tíma til að spjalla við ykkur og svara spurningum.


Hópar

Við bjóðum upp á sérstaka dagskrá fyrir hópa, Horses & Heritage (Hestar & Arfleifð), sem sameinar heimsókn í Gamla Hesthúsið við sögur af íslenska hestinum, bænum og hlutverki hesta í daglegu lífi. Einnig er hægt að skoða Sögusetur íslenska fjárhundsins á Lýtingsstöðum og hitta íslensku hundana á bænum. Ef þess er óskað er hægt að fá kaffi og hjónabandssælu. Dagskráin hentar vel innlendum og erlendum hópum sem hafa gaman af íslenskri menningu, skemmtilegri fræðslu og persónulegri þjónustu og leiðsögn. Fáðu tilboð fyrir þinn hóp!

Hópastærð: 5-50 gestir Lengd: 45-75 mínútur Tungumál: Íslenska, þýska eða enska

Komdu í heimsókn

Ef þú vilt koma utan opnunartíma eða ert að skipuleggja hóp, hafðu þá samband